Skilmálar
Leigusali
​
Ö
Staðarsundi 6-8
240 Grindavík
Kt: 460116-0310
VSK: 134485
Húsnæði er í eigu leigusala
Hið leigða er pláss í húsnæði er um 800 fermetrar og er ætlað fyrir...​
​
-
Hjólhýsi
-
Fellihýsi
-
Tjaldvagn
-
Húsbíl
-
Bifreið
-
Annað
​
Leigutaka er bent á að í samningi geri leigusali ráð fyrir að lengd hins geymda sé samkvæmt
Ökutækjaskrá. Ef lengd er önnur vegna: Varadekks, gaskútafestinga, geymslukassa eða annars
sem eykur lengd, að láta vita fyrir svo hægt sé að gera ráð fyrir því.
Leigutími
Leigutímabilið er bindandi af hálfu beggja aðila samnings. Frá 1. september til 1. maí hvers árs.
-
Upphaf leigutímabils er móttaka á hinu leigða frá 1. september til 15. október.
-
Lok leigutímabils er afhending á hinu leigða 1. maí
Leiguverð og greiðsla
Gengið er frá leigu og greiðslu hér á JV Geymslur.is. Þegar greiðsla er framhvæmd er sjálfkrafa farið inn á öruggt, dulkóðað svæði Rapyd Pay á Íslandi. Engar upplýsingar um greiðslukort eru geymdar hér inn á vefsvæðinu.
Tryggingar á eigum leigutaka
Leigutaki ber einn ábyrgð á eigum sínum í hinu leigða húsnæði og skal sjá um að tryggja eigur
sínar sjái hann ástæðu til. Leigusali mælist til þess að leigutaki láti tryggingarfélag sitt vita að
ferðavagn eða aðrar eigur hans séu í geymdar í geymslunni.
Umgengni um hið leigða
Leigutaki er að leigja í sameiginlegu húsnæði með öðrum og hefur ekki umgengnisrétt að
húsnæðinu á leigutímanum. Ef um er að ræða nauðsynlegar undantekningar frá þessu ákvæði í
ljósi verðmætabjörgunar skal leigutaki greiða fyrir fylgd umboðsmanns leigusala. Innheimt er
komugjald 8.500,- kr. fyrir hverja heimsókn á svæðið utan þess tíma.
Skil á hinu leigða
Sækja þarf ferðavagna á þeim tima sem er auglýstur hér á vefnum og með áminningu sem er sent á þann tölvupóst sem skráður er í upphafi. Farið er fram á taðfestingu á eignarhaldi ef leigutaki
eða eigandi sækir ekki í eign í eigin persónu.
Ábyrgðir
Leigutaki á ekki kröfu á leigusala vegna bilana á bruna og öryggiskerfi hússins eða annarra
aðstæðna sem geta komið óvænt eða óviðráðanlega upp sem ekki hægt að rekja til vanrækslu
leigusala. Leigusali ber ekki ábyrgð á tjónum af völdum náttúruhamfara eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna.
Annað á meðan leigutíma stendur
-
Leigutaki skal ganga þannig frá eigum sínum að ekki hljótist tjón á þeim eða af þeim.
-
Vagn/bíll skal vera hreinn að utan og án olíu eða annarskonar leka.
-
Óheimilt er að geyma gaskúta, rafgeyma og önnur eld- og sprengifim efni.
-
Óheimilt er að geyma matvæli eða annað sem getur skemmst.
-
Salerni ferðavagna og húsbíla skulu vera tæmd hrein og án leka.
-
Tæma skal vatnstanka og vatnslagnir.
-
Loka skal öllum opnum lúgum og gluggum og passa upp á að ekki sé raki inn í vagni/hjólhýsi/húsbíl.
-
Óheimilt er að geyma þýfi eða aðra hluti sem leigutaki á ekki.
-
Komi þannig mál upp er leigusala heimilt að gefa lögreglu eða dómstólum upplýsingar um það sem er inn í húsnæðinu sem og upptökur úr eftirlitsmyndavélum.
Lög og varnarþing
Samningur sem aðilar gera með sér er í samræmi við íslensk lög.
Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
​
JV Geymslur